Vefjasafn
Heim Upp

 

 

Nafn: Agla þyri Kristjánsdóttir
Vefur: samfelagsfraedi
Lęsing: Þetta er vefur unnin af Halldóri Ívarssyni, kennara í Varmárskóla. Á vefnum eru glósur fyrir nemendur í 7. - 10. bekk auk þess sem krækjur eru inn á ýmsa góða vefi sem tengjast samfélagsfræðinámi á elsta stigi grunnskóla. Mikið er af gagnvirku efni ásamt og hagnýtum fróðleik sem settur er fram á skemmtilegan hátt. Vefurinn er í raun ekki unnin sem fjarkennsluvefur en þó ættu nemendur sem af einhverjum sökum kæmust ekki í skóla að vera vel undirbúnir úr námsefni sínu eftir að hafa skoðað þennan vef.

Nafn: Agla Þyri Kristjánsdóttir
Vefur: Vefur námsgagnastofnunnar
Lęsing: Þetta er vefur námsgagnastofnunar. Hann gegnir þríþættu hlutverki. Í fyrsta lagi er honum ætlað að veita upplýsingar um það sem er á döfinni hverju sinni hjá stofnuninni og um nýjar útgáfur. Þá er á vefnum hentugur aðgangur að gagnagrunni sem hefur að geyma upplýsingar um allt útgáfuefni stofnunarinnar, ásamt pöntunarkerfi og í þriðja lagi er vefurinn vettvangur ört vaxandi vefútgáfu Námsgagnastofnunar. Þarna geta nemendur og kennarar nálgast mikið af kennsluefni við allra hæfi.

Nafn: Aron Hinriksson
Vefur: Námsleikir
Lęsing: Skemmtileg síða með ýmiskonar námsleikjum, einkum tengdum stærðfræði. Þessi vefur hentar ýmsum skóla og aldurstigum þar sem yfirleitt er hægt að ráða þyngdarstigi leikjanna. Grafíkin er yfirleitt mjög vönduð og leikirnir þykja því alls ekki hallærislegir heldur þvert á móti nokkuð góðir.

Nafn: Aron Hinriksson
Vefur: Online highschool
Lęsing: Athyglisverður vefur sem fjallar um kosti og galla þess fyrir unglinga að stunda nám á netinu og klára þannig efstu bekki grunnskóla (highschool). Síðan bendir á ýmislegt í þessu samhengi s.s. hvað þarf að hafa í huga, hvaða skóli hentar nemandanum o.s.frv.

Nafn: Auður Valdimarsdóttir
Vefur: Námsgagnastofnun
Lęsing: Ýmsar verkefnasíður frá Námsgagnastofnun fyrir yngri deildir í grunnskóla

Nafn: Auður Valdimarsdóttir
Vefur: Námsgagnastofnun
Lęsing: Ýmsar verkefnasíður frá Námsgagnastofnun fyrir unglingadeild í grunnskóla

Nafn: Auður Valdimarsdóttir
Vefur: Fjarkennsla á Vestfjörđum
Lęsing: Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur eru með samkennslu í gegnum fjarfundarbúnað. Hér má lesa um það.

Nafn: Auður Valdimarsdóttir
Vefur: Skólavefurinn
Lęsing: Á skólavefnum má finna verkefni við hæfi hvers skólaárgangs. Hægt að skoða gömul próf og er þetta tilvalið fyrir börn sem eru á leið í samræmd próf. Að auki er hægt að hlusta á sögur og svo er líka hægt að finna verkefni fyir leikskólaaldurinn. ATH! Þetta er áskriftar vefur!!

Nafn: Árný Jóna Stefánsdóttir
Vefur: Alheimurinn
Lęsing: Amerísk slóð, við ferðumst 10 millj. ljósára frá jörðinni niður í hin minnstu mólikúl. Þetta er vísindavefur sem háskólin heldur úti, Florida State University. Þarna geta nemendur áttað sig á/ímyndað sér hvernig alheimurinn er, brautirnar í kringum sólu og einnig gang tungls í kringum jörðina svo eitthvað sé nefnt. Þarna geta einnig nemendur unnið út frá lengdar gráðum svo og fjarlægðum, á milli staða.

Nafn: Árný Jóna Stefánsdóttir
Vefur: Heimurinn minn
Lęsing: Heimurinn minn, er náttúrufræðivefur sem hannaður er fyrir öll stig grunnskólans, ekki er langt síðan hann var opnaður og er mikið efni þar að finna, s.s. gagnvirk efni, þemaverkefn o.fl. Námsgagnastofnun og Umhverfisstofnun heldur honum úti og er í stöðugri endurvinnslu. Ath. þeir eru að laga hraðann á vefnum, hann vill stundum vera hægur þegar hann er opnaður, en þolinmæði þetta kemur og það er þess virði að bíða.

Nafn: Ása Inga Þorsteinsdóttir
Vefur: Myndasafn Jóns Berg Hlíđbergs
Lęsing: Þessi vefur hefur að geyma gríðarlegt safn af myndum og upplýsingum um nánast öll dýr í íslenskri náttúru. Auðvelt er að leita að einhverju ákveðnu dýri sem maður vill finna upplýsingar um og sjá myndir af því Búið er að skipta dýrunum eftir flokkum niður í nokkra hópa svo sem spenndýr, hryggleysingja ofl. einning er leitarvél inn á síðunni sem hægt er að slá inn heiti dýrsins sem leitað er að. Síðuna er hægt að hafa á íslensku og ensku.

Nafn: Ása Inga Þorsteinsdóttir
Vefur: Námsvefur í frumufræđi
Lęsing: Þessi síða er búin til af Einari Jónssyni kennara í Langholtskóla. Þessi vefur hefur að geyma mikinn fróðleik fyrir börn um frumur, þá bæði dýra og plöntufrumur. Eftir að hafa safnað sér fróðleiks um efnið býðst börnunum að taka sjálfspróf og kanna hversu vel þau hafa náð námsefninu. Þetta er einstaklega vel gerður vefur með mikið að góðum og velgerðum skýringamyndum sem gera námið skemmtilegra.

Nafn: Áslaug Hreiðarsdóttir
Vefur: Skólavefurinn
Lęsing: Á vefnum er að finna vandað efni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og fróðleiksfúst fólk á öllum aldri. Vefurinn er nú stærsti náms- og fræðsluvefur landsins.

Nafn: Áslaug Hreiðarsdóttir
Vefur: Íslenskuskólinn
Lęsing: Íslenskuskólinn er skóli fyrir íslensk börn á aldrinum 0-18 ára sem búsett eru erlendis. Öllum íslenskum börnum á aldrinum 0-18 ára sem búsett eru erlendis (ekki á Íslandi) er velkomið að skrá sig í Íslenskuskólann.

Nafn: Bára Ingólfsdóttir
Vefur: Fjaran og hafiđ
Lęsing: Á þessum vef er fjölbreyttur fróðleikur um lífverur sem lifa í fjörum og í hafinu. Á vefnum er mikið myndefni, ljósmyndir, teikningar og videoefni. Efnið er unnið í samvinnu Námsgagnastofnunar og Hafrannsóknastofnunar.

Nafn: Bára Ingólfsdóttir
Vefur: Lesblind börn, kennsla og țjálfun
Lęsing: Þetta er sniðugur vefur fyrir börn með lesblindu og ekki síður foreldra. Þarna er að finna kennsluverkefni fyrir börn á aldrinum 7-16 ára. Einnig er kennsla fyrir foreldra til að miðla og hjálpa börnum sínum við nám. Þarna er hægt að lesa fréttir um lesblindu og fara á spjall, bæði börn við önnur börn og foreldrar við aðra foreldra í sömu stöðu og þeir sjálfir.

Nafn: Bjarndís Fjóla Jónsdóttir
Vefur: Discovery School
Lęsing: Vefslóð sem er mjög nytsamleg. Þarna er að finna mörg verkfæri til þess að búa til gagnvirk verkefni og próf.

Nafn: Bjarndís Fjóla Jónsdóttir
Vefur: God nok pć nettet
Lęsing: Þetta er dönskuvefur inni á vef Námsgagnastofnunnar. Þetta er stuðningsefni með bókinni God nok sem er ítarefni í dönskukennslu í grunnskólum. Þar er að finna hlustunaræfingar, gagnvirk orðaforðaverkefni, spurningaleikur, krækjur og kennsluleiðbeiningar.

Nafn: Bjarndís Fjóla Jónsdóttir
Vefur: Danska menntanetiđ
Lęsing: Þarna er að finna margar vefsíður sem tengjast menntamálum. Þær eru flokkaðar eftir kennslugreinum og aldri. Þarna eru meðal annars 1000 bestu vefsíður með kennslufræðilegu efni. Þessi vefur býður upp á leit.

Nafn: Bjarndís Fjóla Jónsdóttir
Vefur: Fyrir fjarkennarann
Lęsing: Þetta er vefsíða sem ég rakst á þar er að finna tengingar sem nýtast fjarkennurum

Nafn: Bjarndís Fjóla Jónsdóttir
Vefur: Heilabrot
Lęsing: Ég læt þetta fylgja með. Þetta er námskeið sem Anna Kristjánsdóttir prófessor í stærðfræði við KHÍ, var með (1998-1999) fyrir kennara nemenda á miðstigi og unglingastigi. Eingöngu var kennt á netinu. 17 grunnskólar á landinu tóku þátt í þessu námskeiði. Það er gaman að skoða þetta af því síðan er ennþá opin og sjá hvað var í gangi á síðustu öld. (hehe).

Nafn: Elísabet Valdimarsdóttir
Vefur: Skrudda
Lęsing: Skrudda er félag íslenskra móðurmálskennara á Norðurlönum. Félagið er með vef sem hefur það að markmiði að íslenskumælandi börn og unglingar, sem búa erlendis, eigi þess kost að halda móðurmáli sínu og þróa það. Markmið félagsins er einnig að kynna ný kennslugögn í íslensku, samfélagsfræði og öðrum greinum, sem geta nýst í kennslunni. Á síðunni er að finna tengla inn á ýmsar gagnlegar síður bæði fyrir kennara og nemendur.

Nafn: Elísabet Valdimarsdóttir
Vefur: Menntagátt
Lęsing: Menntagátt er samstarfsverkefni milli menntamálaráðuneytisins og Hugar hf. Meginmarkmið menntamálaráðuneytisins með uppbyggingu Menntagáttar er að veita skólum greiðan aðgang að upplýsingum og þjónustu sem er aðgengileg á Netinu. Á vefinn er skráð efni tengt skólastarfi og er það síðan tengt við áfanga, námsgreinar og markmið námskráa. Á vefnum er einnig gagnagrunnur námskráa sem auðveldar gerð skólanámskráa og einstaklingsmiðaðra námskráa. Daglegar fréttir og upplýsingar um skólamál er einnig meðal þess sem er í boði á Menntagátt.

Nafn: Eva Lilja Sigþórsdóttir
Vefur: K-12 námsskráin
Lęsing: Fjarkennsluvefir fyrir börn á grunnskólastigi eru nokkuð algengir á netinu. Hér er einn sem kennir samkvæmt K-12 námskrá. K-12 var stofnað 1999 af hámenntuðum aðilum í Bandaríkjunum sem höfðu það að markmiði að skapa námskrá sem miðar að tölvu- og netvæddu umhverfi, ásamt hefðbundnu námsefni og vönduðum kennsluaðferðum. Endilega lesið ykkur frekar til um þennan K-12 “net-skóla” á fyrrnefndri slóð.

Nafn: Eva Lilja Sigþórsdóttir
Vefur: Wikipedia
Lęsing: Wikipedia er frjálst alfræðirit þar sem notendur um allan heim byggja upp alfræðisafn saman. Wikipedia er uppflettirit þar sem lesendur hafa tök á að nálgast ýmsar fróðlegar upplýsingar um nánast hvað sem er, bæta við upplýsingum eða breyta síðunum á vefnum. Þessi námsvefur er tilvalinn fyrir alla aldurshópa. Enska útgáfu af Wikipedia má finna á slóðinni http://en.wikipedia.org/wiki/Main_Page

Nafn: Eva Lilja Sigþórsdóttir
Vefur: Gagnvirkur námsvefur
Lęsing: Á þessari vefsíðu má finna ýmislegt sem nýta má við kennslu í grunnskólunum. Þar má t.d. fræðast um sólkerfin, læra um brot, semja sína eigin tónlist, hlusta á sögur eftir H.C. Andersen og fræðast um forna menningu Grikkja og Egypta svo eitthvað sé nefnt. Tilvalið til gera námið fjölbreytilegt og skemmtilegt.

Nafn: Eva Lilja Sigþórsdóttir
Vefur: ILMS-kerfiđ
Lęsing: Höfundur, Maomi Ueno kynnir ILMS-kerfið (Intelligent Learning Management System) sem hann hefur sjálfur þróað í grein sinni “Data mining and text mining technologies for collaborative learning in an ILMS “Samurai” (lauslega þýtt “Tækni við gagnaöflun og textaleit fyrir Samvinnunám í ILMS “Samurai””). Í skrifum sínum bendir höfundur á hvernig best sé að greina og nýta upplýsingar í samvinnunámi/fjarnámi á netinu. Það er mjög gaman að lesa sér til um hvernig höfundur hefur þróað kerfi til að skipuleggja og nýta það sem fjarneminn þarf að hafa á skjánum og hvernig fjarnemar geta t.d. þannig mæst í samræðum á netinu. Endilega lesið þessa stuttu og fróðlegu grein.

Nafn: Eva Lilja Sigþórsdóttir
Vefur: Stođkennarinn
Lęsing: Stoðkennarinn er gagnvirkur vefur í íslensku, stærðfræði og tölvuvinnslu sem sniðinn er að þörfum eldri bekkja grunnskólans og nemenda framhaldsskóla. Jafnt getulitlir sem og getumeiri nemendur geta nýtt sér það sem í boði er þar sem notanda gefst ávallt kostur á hjálp frá Stoðkennaranum ef hann rekur í strand. Einnig getur vefurinn gagnast öllu því fólki, hvar sem það er statt á lífsleiðinni, sem vill hressa upp á kunnáttu sína í fyrrnefndum fögum.

Nafn: Freyja Finnsdóttir
Vefur: Țróunarverkefni í Háskóla Íslands í notkun opins hugbúnađar
Lęsing: ATH! Nauðsynlegt er að vera niðri í kennó til þess að komast ókeipis inn á þessa grein þar sem hún er inn í gagnasafni morgunblaðsins. Í þessari grein er fjallað um þróunarverkefni sem enskuskorin í Háskóla Íslands er að fara af stað með og gengur út á að þróa náms og kennslu umhverfi þeirra á netinu sem þeir nota í fjarkennslu. Ástæða þess að ég ákvað að setja greinina hér var að ég var svo ánægð að sjá að virtir evrópskir sjóðir eru að setja peninga í þróun á opnum hugbúnaði eins og Moodle er (fjarkennslu náms/kennslu umhverfi). Þetta gaf mér að minnsta kosti ein rök í viðbót í rökstuðningi mínum um ágæti opins hugbúnaðar.

Nafn: Freyja Finnsdóttir
Vefur: Moodle
Lęsing: Moodle er "Open source" (opinn hugbúnaður) netnámsumhverfi sem virkar svipað og WebCT og álíka kerfi og við flest öll þekkjum..en er ókeypis (frá einu sjónarhorni, ekki öllum :) ) Nokkrir skólar hérlendis hafa gert tilraunir með þetta kerfi og virðist það hafa gengið vel. Moodle styður SCORM og því hægt að flytja efni úr WebCT og fleiri álíka kerfum yfir í Moodle.

Nafn: Freyja Finnsdóttir
Vefur: Menntagátt
Lęsing: Menntagátt er frábær vefur sem stofnaður var af Menntamálaráðuneytinu í byrjun árs 2003. Vefurinn stækkar ört með hverjum deginum og það er alltaf eitthvað nýtt að finna þarna. Þessi vefur er hinn dæmigerði tenglavefur með menntamál sem viðfangsefni. Þarna er ekki bara hægt að fylgjast með öllu því nýjasta í menntamálum hérlendis sem erlendis, heldur er þarna líka góður gagnagrunnur með námsefni sem er flokkað eftir námsgreinum og aldurstigum. Mjög góður byrjunarreitur þegar byrja á að leita að einhverju tengdu menntamálum.

Nafn: Freyja Finnsdóttir
Vefur: Tímarit um e-learning
Lęsing: Innovateonline er tímarit, gefið út á netinu sem fjallar um e-learning(veit einhver um góða íslenska þýðingu á því hugtaki?), upplýsingatækni í skólastarfi og margt fleira. Inn á milli eru mjög áhugaverðar greinar þarna :)

Nafn: Guðbjörg Guðmannsdóttir
Vefur: Tungumálaver Laugalækjarskóla
Lęsing: Hér er að finna mjög áhugavert þróunarstarf sem Laugalækjaskóli er að vinna að í sambandi við fjarkennslu tungumála. En í febrúar 2002 var stofnað þar tungumálaver þar sem boðið er upp á fjarkennslu í norsku, sænsku, ensku og dönsku. Jafnframt er þar um þróunarstarf að ræða varðandi kennsluvef til fjarkennslu til að kenna tungumál sem valgreinar í 9. og 10. bekk.

Nafn: Guðbjörg Guðmannsdóttir
Vefur: Upplęsingatækni fyrir 5.-7. bekk
Lęsing: Hér má finna ýmsar skemmtilegar æfingar sem tengjast upplýsingatækni fyrir 5.-7.bekk. Þessi vefur er á vegum Námsgagnastofnunar. Verkefnin taka mið af áherslum Aðalnámskrár og er lögð áhersla á að kenna nemendum að leita á netinu og að nota forritin Word, PowerPoint, Paint, Publisher og FrontPage. Með hverju forriti fylgja mörg verkefni sem nemendur geta unnið.

Nafn: Guðfinna Hákonardóttir
Vefur: Fuglavefur Borgarskóla
Lęsing: Fuglavefur Borgarskóla er skemmtilegur vefur sem settur er upp í formi dagbókar (blogg síða). Þar er fjallað um hina ýmsu fuglategundir. Kennarar og nemendur geta nálgast gagnvirk verkefni um fugla, hlustað á hljóð þeirra og skoðað myndir af fuglum. Skemmtilegur og vel upp settur vefur.

Nafn: Guðfinna Hákonardóttir
Vefur: Skólavefurinn
Lęsing: Skólavefurinn inniheldur umtalsvert magn af kennsluefni sem nýta má bæði í kennslu og til einkanota. Á vefnum talsettar sögur ásamt gagnvirkum verkefnum, spurningum og orðskýringar í tengslum við þær. Krossgátur í tengslum við námsgreinar og efni fyrir yngri börn er þar að finna. Þar má einnig finna gömul samræmd próf fyrir 4. 7. og 10. bekki grunnskólans. Greiða þarf fyrir aðgang að verkefnum.

Nafn: Guðný Sigurjónsdóttir
Vefur: Námsgagnastofnun
Lęsing: Á þessari vefsíðu hjá námsgagnastofnun er að finna leiðbeiningar og verkefni í tölvu og upplýsingatækni, fyrir nemendur í 5-7 bekk. Þetta er frábær vefur til að styðjast við og nota verkefnin. Höfundar Arndís Hilmarsdóttir er höfundur verkefna með forritunum PowerPoint, Paint, Publisher FrontPage. Margrét Sigurgeirsdóttir er höfundur verkefna með forritinu Word. Ritstjórar eru Hildigunnur Halldórsdóttir og Sylvía Guðmundsdóttir

Nafn: Guðný Sigurjónsdóttir
Vefur: Blönduskóli
Lęsing: Hér er slóð inn á síðu sem að inniheldur mikið úrval af fjölbreytum kennslusíðum sem gaman er að skoða og nota beint eða fá hugmyndir við kennslu.

Nafn: Margrét Drífa Guðmundsdóttir
Vefur: Kennarakrækjur
Lęsing: Hér er vísað á marga góða vefi og skemmtilega. Innlendir vefir og erlendir, gagnvirkir vefir fyrir nemendur, fjalla um listir, íslenska, vefleiðangrar, náttúrufræði ofl.

Nafn: Margrét Drífa Guðmundsdóttir
Vefur: Plöntuvefurinn
Lęsing: Upplýsingar og myndir um rúmlega 100 íslenskar plöntur. Einfaldur vefur og auðvelt að vinna á honum og nær því jafnvel líka til yngri aldurshópa. Gagnvirkar æfingar t.d. plöntugreining, spurningar um ákv. plöntur, búsvæði og skemmtilega fróðleiksflugan.

Nafn: Margrét Drífa Guðmundsdóttir
Vefur: Kanntu líffærafræđi?
Lęsing: Skemmtilegur vefur sem nýtist í náttúrufræði. Gagnvirkar æfingar. Hægt að velja um nokkur tungumál sem er kannski ekki verra í síbreytilegu samfélagi.

Nafn: María Lapas
Vefur: Fjarnámsskóli
Lęsing: Hér er slóðin á skólann sem vitnað er í í greininni á CNN. Þetta er skóli fyrir: Gifted and talented students Special needs students Students who need to "make-up" credit Public and non-public school students Home-schoolers Það er eins og flestir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þarna. Ætli börn sem eru mikið á ferðinni t.d. börn kvikmyndaleikara eða eru leikarar sjálf sæki ekki í þessa skóla í staðinn fyrir að vera með kennara eltandi sig um allt??

Nafn: María Lapas
Vefur: CNN
Lęsing: Grein sem birtist á CNN í mars 2005 þar sem verið að fjalla um hvernig vinsældir fjarnáms séu að breiðast frá gagnfræðiskólum niður í yngri bekkina. Hér er fjallað um hvernig þetta nýtist skólum sem hafa ekki nógu sterka kennara á ákveðnum sviðum á dreifbýlissvæðum. Þá geta skólarnir bara sett sig í samband við fjarnámsskóla og nemendur taka fögin í fjarnámi. Þetta virðist verða vinsælla með hverju árinu en ég veit ekki hvernig skólarnir fjármagna þetta eða hvort það er ríkið??

Nafn: María Lapas
Vefur: Laurel springs school
Lęsing: Þetta er fjarskóli þar sem nemendur geta tekið upp fög sem þeir hafa fallið í og fá þá gott aðhald, eða tekið fög sem þeim vantar, bekki eða annað. Þessi skóli er viðurkenndur um öll Bandaríkin og þeir virðast notast við Aurora kerfi sem heldur utanum námskeiðið fyrir utan að vera í beinu sambandi bæði við tæknideild og kennara.

Nafn: Ólafía Ósk Sigurðardóttir
Vefur: Flötur
Lęsing: Þetta er linkur inn á samtök stærðfræðikennara sem heitir Flötur og inni á vef þeirra samtaka eru skemmtileg verkefni fyrir nemendur. Mánaðarlega byrjar nýtt verkefni sem stendur mismunandi lengi yfir en á vefsíðunni er einnig að finna kennsluleiðbeiningar og námsmatsaðferðir. Þessi vefur hentar mjög vel fyrir kennara.

Nafn: Ólafía Ósk Sigurðardóttir
Vefur: Íslenskuskólinn
Lęsing: Íslenskuskólinn er fyrir leik- og grunnskólabörn sem búa erlendis. Skólanum er skipt upp í 3 þrep sem eru 0-6 ára, 6-16 ára og 10-18 ára. Íslenskuskólinn var formlega opnaður um áramótin 2003/2004 og voru í apríl 2004 um 400 nemendur, búsettir í 28 löndum og 5 heimsálfum. Helstu markmið Íslenskuskólanns eru m.a. að námsefnisgerð sé miðuð að námskrá íslenskra skóla. Eins og annað fjarnám gengur út á þá eiga nemendur að skila inn verkefnum á ákveðið heimasvæði. Einnig taka þau þátt í lestrarátaki og umræðum. Í skólanum er gefið út skólablað sem sett er inn á heimasíðu skólans. Blaðið er mikið til byggt upp á greinum sem nemendur skrifa og senda inn. Þetta er mjög áhugaverður skóli og góð leið fyrir íslensk börn sem búa erlendis að sinna og viðhalda móðurmáli sínu.

Nafn: Ólafía Ósk Sigurðardóttir
Vefur: Vefstudd tónfræđikennsla
Lęsing: Þessi vefur er vefstudd tónfræðikennsla og sér Stefán S. Stefánsson um vefinn. Hér geta nemendur Tónlistarskóla Árbæjar stundað nám sitt í gegnum netið. Á slóðinni sem ég vísa til er boðið upp á tónfræðinám á grunnstigi og aðeins upp á miðstigið en það þýðir að vefurinn henti þeim nemendum sem byrjaðir eru að lesa og alveg upp í 10. bekk, jafnvel eitthvað inn á framhaldsskólaaldurinn. Á vefnum er boðið upp á verkefni, hlustun, greiningu, sögu, ritun og sjálfspróf. Allt námsefni vefsins miðast við aðalnámskrá tónlistarskóla. Vefurinn er aðeins hluti af stærri heild eða vefnum tónmennt.is en til þess að geta kynnt sér hann þarf lykilorð. Þar sem vefurinn er fyrir börn þá fylgja kennarar Tónlistarskóla Árbæjar nemendum eftir með yfirferð á verkefnum sem nemendur skila inn. Til þess að geta færst á milli þrepa þurfa nemendur að hafa náð færni í ákveðnum þáttum. Mjög áhugaverður vefur og gaman að sjá hversu fjölbreytt netnám getur verið.

Nafn: Ríkharður
Vefur: Fuglalíf á Selfossi
Lęsing: Flottur vefur um fuglalíf á Selfossi

Nafn: Ríkharður
Vefur: Fjarkennsla á Ströndum
Lęsing: Skýrsla Rúnars Sigþórssonar um tilraun með fjarkennslu í grunnskólanum Broddanesi í Kollafirði á Ströndum þar sem notaður var fjarfundarbúnaður. Fróðleg skýrsla með lesningu Jóns í huga um "Fjarkennsla og námsumhverfi".

Nafn: Sigrún Dögg Pétursdóttir
Vefur: Țróunarskólaverkefni í upplęsingatækni
Lęsing: Hér má finna skýrslu sem gerð var fyrir menntamálaráðuneytið árið 2002. Þetta er þróunarverkefni “um framþróun upplýsingatækni í kennslu, námi og skólastarfi”. Verkefnið stóð yfir í þrjú og hálft ár, frá 1999 til 2002. Í stuttu máli er verið að athuga áhrif upplýsingatækni í skólastarfi. Þetta er frekar löng skýrsla, en mjög gott skipulag á henni og er hún auðveld til lesningar. Gæti komið að góðu gagni við gerð lokaverkefnisins.

Nafn: Sigrún Dögg Pétursdóttir
Vefur: Rasmus.is
Lęsing: Á Rasmus.is er hægt að nálgast tvenns konar gagnvirkt efni. Annars vegar stærðfræðivefinn og hins vegar tölvulæsivefinn. Stærðfræðivefurinn er hugsaður fyrir krakka allt frá yngsta stigi í grunnskóla upp í efsta stig, og einnig fyrir unglinga í framhaldsskólum. Á þessum vef er hægt að velja sér þyngdarflokk, og námsþátt innan hans. Efnið er sett fram á sem einfaldasta hátt, og svo í lok hvers námsþáttar getur nemandinn tekið próf til að athuga færni sína. Stærðfræðivefurinn er ókeypis. Tölvulæsivefurinn er hugsaður fyrir kennara sem vilja bæta og styrkja kunnáttu sína í tölvutækni. Það þarf að sækja um áskrift að þessum vef.

Nafn: Sigurður Hinrik Tómasson
Vefur: Egill Skallgrímsson
Lęsing: Vefur sem viðkemur Agli Skallagrímssyni. Allt sem þú þarft og villt vita um þennan merka mann. Vefurinn er unnin af Hörpu Hreinsdóttir kennara við Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi.

Nafn: Sigurður Hinrik Tómasson
Vefur: Danska
Lęsing: Góður gagnvirkur vefur unnin af kennurum í Álftamýrarskóla. Klárlega einn sá besti sem ég hef séð.

Nafn: St.Ruth Stefnis
Vefur: Țekkingarnet
Lęsing: Framtíðarsýn í upplýsingamálum og fræðslu hugmynd Jóns Erlendssonar yfirverkfræðings hjá Háskóla Íslands að persónulegu "alminni" Bættu framleiðni í nami,vísindastörfum og kennslu. Endurnýtun upplýsinga og þekkingar.

Nafn: St.Ruth Stefnis
Vefur: Próf til prufu
Lęsing: Krossapróf á vefsíðu byggð á javascript. Hér er ókeypis til prufu en einungis er hægt að hafa sex spurningar í hverju prófi í prufuútgáfunni.

Nafn: St.Ruth Stefnis
Vefur: Próf á vefsíđum
Lęsing: Krossapróf á vefsíðu byggð á javascript. Próf sem keyra á vefsíðum eru tvenns konar, próf gerð með javascript og próf sem byggja á cgi-bin forritun. Auðveldara er að nota fyrrnefndu gerðina en ókosturinn við þá gerð er að nemandinn getur séð réttu svörin kunni hyanna að lesa kóðann sem síðan er skrifuð á.

Nafn: stefán Óskar Aðalsteinsson
Vefur: Grunnskólinn í Hveragerđi
Lęsing: í þessum skóla má sjá meðal annars verkefni í upplýsingartækni sem heitir leirkvikmyndir.

Nafn: stefán Óskar Aðalsteinsson
Vefur: Vefverkefni Guđrúnar Jónasdóttur
Lęsing: hér má sjá vefleiðangra,kennsluvefir,námsumshverfi á vef og margt fleira.

Nafn: stefán Óskar Aðalsteinsson
Vefur: The Hole-in-the-Wall
Lęsing: mig langar bara að setja þessa síðu hér. því á henni er saga um hvernig fátæk börn og unglingar á indlandi lærðu að nota tölvu án aðstoðar kennara.

Nafn: stefán Óskar Aðalsteinsson
Vefur: Enis
Lęsing: þetta er síða um Enis. European network of innovative schools. þetta er netverk 450 skóla í evrópu þar sem kennarar nota tölvu og upplýsingartækni til að koma reynslu sinni á framfæri og hafa samskipti við aðra kennara.

Nafn: stefán Óskar Aðalsteinsson
Vefur: QuizFaber
Lęsing: þessi síða bíður upp á forrit til að gera krossapróf á vefnum með javascript. ókeypis

Nafn: Þórey Gunnarsdóttir
Vefur: Heimurinn
Lęsing: Nýr vefur

Nafn: Þórey Gunnarsdóttir
Vefur: Kistan
Lęsing: Hér á þessum vef undir bókmenntir er finna námsefni fyrir hinar ýmsu námgreinar sem hægt er nota þegar nýta á sér netið. Bent er á gagnvirk efni, bækur,tímarit og vefi.

Nafn: Þórey Gunnarsdóttir
Vefur: Skólavefurinn
Lęsing: Skólavefurinn er vefur sem hægt er að nýta á margan hátt bæði í kennslu og einnig fyrir heimili. Á vefnum er finna ýmis efni s.s lestur, vinna með gagnvirk efni og sýnikennslu sem er talsett. Sniðug efni fyrir kennara sem kenna upplýsingamennt á þessari slóð en það þarf að kaupa aðgang af efni,

(Síđast breytt 26.01.2006)
 


© 2006 Jón Jónasson - jonj@khi.is