|
Margmiðlun
til náms og kennslu - Námsbraut um tölvu- og upplýsingatækni | |
|
|
Margmiðlun til náms og kennslu
Umsjón: Torfi Hjartarson lektor - torfi@khi.is Tími: Vormisseri. Námskeið í framhaldsdeild á námsbraut um tölvu- og upplýsingatækni. Markmið: Nemendur geti
Viðfangsefni og vinnulag: Fjallað er um gagnvirka margmiðlun á fræðilegum grunni, einkum með tilliti til náms og kennslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði námsefnisgerðar, handritsgerð, hönnunarferli og notendaprófanir. Sérstakri athygli verður beint að efnisbyggingu, samspili miðla, yfirbragði efnis, gagnvirkni og notendaskilum. Kynnt verða ýmis verkfæri og hugbúnaður til hljóðvinnslu, myndvinnslu og margmiðlunar. Nemendur móta hugmyndir um vinnulag og notkun verkfæra til margmiðlunar í skólastarfi. Auk smærri einstaklingsverkefna vinna nemendur einir eða fleiri saman að gerð margmiðlunarefnis af einföldum toga, gjarnan með stærri verk í huga. Námsmat: Verkefni metin til einkunnar. Aðrir kennarar á námskeiðinu: Björgin Ívar Guðbrandssson kennari, Ester Ósk Traustadóttir verkefnastjóri, Hilmar Þórðarson tónskáld og Þorvaldur Pálmason auk fleiri gesta. Efni á vef og samskipti við kennara: Auk kennslu í staðbundnum lotum í upphafi námskeiðs, staðbundinni lotu í mars og á lokadegi í apríl er lagt fram ýmislegt efni og staðið fyrir umræðum í WebCT. Þar má beina fyrirspurnum til einstakra kennara eftir þörfum. Einnig er í ráði að bjóða upp á sérstök smiðjukvöld eða smiðjudaga í Hamri við Háteigsveg. Lesefni og búnaður: Bent er á ýmislegt efni á vef og fjölda bóka sem tengjast viðfangsefnum námskeiðsins. Nemendur eiga þess kost að kaupa geisladisk með hugbúnaði til nota á námskeiðinu. Diskarnir verða til sölu í afgreiðslu gagnasmiðju á miðhæð í Hamri. Dæmi um verkefni
Nemendur vinna ýmis smærri valverkefni en leggja að jafnaði mesta áherslu á eitt
margmiðlunarverkefni unnið í Mediator frá Matchware, Flash frá Macromedia,
vefsíðugerðarforritum eða með öðrum hætti. Af stærri verkum hafa sum verið drög
sem hafa verið unnin áfram sem lokaverkefni á námsbrautinni með útgáfu á vegum
höfunda eða annarra aðila í huga. Önnur stærri verk hafa fjallað um
aðskiljanlegustu efni og oftast verið skilað á geisladiskum þó að skil á vef
færist í vöxt. Af smærri verkefnum má nefna að nemendur hafa stundum spreytt sig
á hringmyndagerð, gerð hreyfimynda með leirkörlum, raddsettu
leiðbeiningarefni um notkun hugbúnaðar og gerð minni skjásýninga af
margmiðlunartoga auk ýmiss konar úttekta og athugunarefna. Vinnu með hljóð og
myndgerð er gefinn sérstakur gaumur og nemendur fá leiðsögn við hljóðvinnslu,
tökur og myndklippingar. |
|
Torfi Hjartarson
lektor |