20.50.31.016
Upplýsingatækni og skólastarf
Grunnskólaskor - 3. misseri - Haust 2003
Kennaraháskóli Íslands
Athugun á notkun
upplýsingatækni
við valinn grunnskóla
Heimsókn í skólann, viðtöl, athuganir
Efni gerð skil á vef, kennari leggur til síðusnið
Torfi Hjartarson tók eftirfarandi verkefnislýsingu
saman,
útbjó síðusnið og hefur umsjón með þessu verkefni
torfi@khi.is
- http://starfsfolk.khi.is/torfi
Viðfangsefni og markmið
Viðfangsefni
Nemendur eiga að setja sig í spor blaðamanns eða rannsóknaraðila og leitast við að fá sem besta mynd af notkun upplýsingatækni við tiltekinn skóla með heimsókn og viðtölum og gera svo efninu sem áhugaverðust og aðgengileg skil á Veraldarvefnum. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni í sex hópum að þessu verkefni, gjarnan fjórir til fimm í hóp. Hver hópur fær úthlutað skóla að sækja heim og setur upp vef um sitt viðfangsefni. Kennari býr svo til einfalda yfirlitssíðu þar sem bent er á vefi allra hópanna.
Markmið
Meginmarkmið er að nemendur skoði notkun upplýsingatækni á vettvangi grunnskóla, fái yfirsýn yfir fjölbreyttar kringumstæður í skólastarfi, líti á mörg sjónarmið og velti fyrir sér frá sem flestum hliðum möguleikum og hindrunum sem varða þennan þátt skólastarfsins. Ennfremur fá nemendur þjálfun í að miðla reynslu sinni og athugunum á vef og glíma við að setja slíkt efni fram á aðgengilegan og áhugavekjandi hátt. Af þáttum sem reynir á við þetta verkefni má nefna samvinnu og verkskipulag í hóp, vefsíðugerð með hjálp tilbúinna sniða, textagerð fyrir vef, ljósmyndun og einfalda hljóðupptöku.
Undirbúningur, heimsóknir og viðtöl
Tíminn
Kennari leggur til skóla, tengilið við skólann og heimsóknartíma. Stefnt er að heimsóknum miðvikudaginn 5. nóvember kl. 13 fyrir nema í miðvikudagshópi og fimmtudaginn 6. nóvember kl. 13 fyrir nema í fimmtudagshópi. Gætið þess að mæta stundvíslega í heimsókn og viðtöl. Munið að fólkið sem tekur á móti ykkur eða veitir viðtöl er að gefa af dýrmætum tíma sínum. Ekki eyða honum í óþarfa. Reynið engu að síður að fá sem allra mest út úr heimsókn og viðtölum, spyrja margra spurninga og fara sem vandlegast yfir allt sem um er rætt.
Athuganir
Verið búin að kynna ykkur eins og þið getið skóla, stofnun eða einstaklinga fyrir heimsóknir og viðtöl. Skoðið vefsíður skóla og stofnana, bekkjarsíður og nemendaverkefni, heimasíður kennara þar sem þeim er til að dreifa og spyrjið fólk sem ykkur þykir líklegt að þekki til fólks eða starfsemi.
Umhugsun
Hugsið viðtöl og heimsóknir vandlega í gegn áður en farið er á staðinn. Frá hvaða sjónarhorni ætlið þið að skoða hlutina? Hvaða spurningum viljið þið fá svör við? Hvers vegna er talað við tiltekið fólk en ekki annað? Hvernig er líklegt að málin horfi við honum eða henni, af hvaða sjónarhóli horfir hann eða hún á málin?
Spurningar
Gott er að styðjast við nokkrar ákveðnar spurningar eða meginatriði en látið ekki slíkan lista stýra viðtali um of. Það er ekki nóg að spyrja spurninga, það er mjög mikilvægt að hlusta vel og grípa upp það sem sagt er, spyrja út í hluti sem fram koma, rekja þræði. Hvers vegna? Nú, hvernig stendur á því? Hvað finnst ykkur um það? Hvað finnst öðrum? Geturðu sagt okkur meira um þetta? Spyrjið margra og opinna spurninga og gætið þess að slengja ekki mörgum spurningum saman í eina.
Hughrif og minnisatriði
Takið með ykkur minnisbækur eða blokkir og punktið hjá ykkur atriði sem vekja athygli í heimsókn. Hvernig er umhverfið í skólanum og kennslustofunni, á skrifstofunni eða skólastofunni. Hvað stingur í augu eða vekur spurningar, hvað vekur virðingu eða aðdáun. Hvernig kemur fólkið fyrir sjónir og hvernig er það stemmt? Hvernig eruð þið upplögð sjálf, í hvaða anda er farið á vettvang, hvernig er veðrið? Hvaða hugrenningar vakna við lok heimsóknar? Allt hjálpar þetta ykkur að muna það sem þið verðið áskynja um eða eruð að velta fyrir ykkur í heimsókn eða viðtali og að gera hlutunum góð skil með skrifum þegar heim er komið.
Upptökutæki
Hafið með ykkur upptökutæki til að geta farið yfir viðtöl eftir á. Segið viðmælanda frá tækinu og hvers vegna þið notið það. Hafið með ykkur vararafhlöðu, snúru og heyrnartól. Verið búin að prófa tækið, læra á það og finna út hversu nálægt hljóðnemi þarf að vera til að hljóð skili sér vel. Kennari hefur tekið tækin frá, gagnasmiðja lánar þau út og veitir ráðgjöf um þetta. Ef eitthvað ber út af í upptöku verðið þið að vera dugleg að skrifa niður það sem fram kemur.
Myndir
Takið mikið af myndum og vandið þær sem mest. Takið minnst tvær, þrjár nærmyndir af öllum viðmælendum svo að tryggt sé að góð mynd verði af öllum sem við er rætt. Stafræna vél þarf stundum að skorða vel svo að mynd verði ekki hreyfð. Verið fljót en vandvirk með því að huga vel að ljósi, sjónarhorni og skurði á mynd. Oft er gott að draga linsuna að eða færa sig nær myndefninu, ramma það vel inn og loka annað úti. Einnig má bregða á leik með sjónarhorn.
Reynið að hafa sem mest líf í myndunum, takið fremur af fólki að nota búnað en af búnaðinum sjálfum og þar fram eftir götum. Myndir af umhverfi innan dyra og utan er gott að hafa í farteskinu, myndir af húsi, safni, stofu. Myndir sem sýna stemmningu og líf, bara eitthvað um að vera, varpa skemmtilegu ljósi á efnið og þurfa ekki endilega að tengjast efninu beint. Ef eitthvað vekur sérstaka athygli eða spurningar má gjarnan taka af því mynd.
Þakkir og samband viðmælendur eftir á
Þakkið öllum viðmælendum vel fyrir ykkur. Það mætti bjóða viðmælendum að lesa yfir efnið og sjálfsagt er að verða við því ef um er beðið. Takið að minnsta kosti niður símanúmer og tölvupóstfang til að geta fengið upplýsingar um óljós atriði síðar. Það er betra að hafa samband aftur og spyrja en fara rangt með og sýnir bara vönduð vinnubrögð.
Foreldrar og börn
Hafið í huga þegar og ef þið ræðið við börn og unglinga að viðtal við einstaklinga í röðum nemenda gæti krafist samþykkis foreldra. Hafið samráð við starfsfólkið um þetta atriði. Sjálfsagt er að forðast að setja fram á vefnum nákvæmar upplýsingar um börnin, fornafn og aldur eða bekkur ættu að nægja.
Skil á vefnum
Vefurinn
Setjið upp vefsíðu eða vef um heimsóknina, um þær hugmyndir þið hafið gert ykkur um notkun upplýsingatækni við skólann eða starfsemina sem um ræðir, um heimsóknina eða heimsóknirnar og það sem þar bar fyrir augu og eyru, hugrenningar sem vöknuðu eða koma upp síðar. Til að létta leikinn og flýta fyrir ykkur leggur kennari fram tilbúið snið að aðalsíðu og undirsíðu fyrir stutt viðtal.
Hér má fá aðalsíðusniðið og viðtalsniðið án þema (theme). Hægt er búa til tóman FrontPage-vef (Empty Web) eða einnar síðu vef (One Page Web) á tölvudrifinu heima eða á heimasvæði við skólann og vista síðurnar beint ofan í vefmöppuna með því að velja File og Save as ... í Internet Explorer. Þegar þetta er gert má gefa aðalsíðusniðinu skjalaheitið index.htm og viðtalssniðinu nafnið vidtal_1.htm svo að dæmi sé tekið. Síðarnefnda skjalið má svo afrita og líma aftur inn í vefmöppuna eins oft og þurfa þykir, kalla það vidtal_1.htm fyrir fyrsta viðtal, vidtal_2.htm fyrir annað og þannig koll af kolli.
Í FrontPage má raða síðunum upp í Navigation View með því að hafa Folder List opinn vinstra megin á skjánum (veljið Folder List undir View, ath. Folder List en ekki Folders) og draga síðuskjöl inn undir kassa aðalsíðunnar á miðjum skjá. Inn í kassana sem þá verða til og sýna skipan vefsins má skrá síðutitla sem birtast í borðanum (Page Banner) sem er efst á hverri síðu. Einnig má setja á vefinn þema (Format og Theme). Ef hakað er við All Pages í valmyndinni Format Theme fá síðurnar allar sama útlit.
Til að skrifa á síður, eiga við myndir og fleira þarf að opna síður, fá þær upp í Page View. Það má gera með því að tvísmella á síðuskjalið í Folder List eða kassa síðunnar í Navigation View.
Hnapparnir efst á aðalsíðu benda á svonefnd bókamerki eða bookmarks við viðeigandi fyrirsagnir neðar á síðunni. Merkin eiga að birtast sem flögg í FrontPage en sjást ekki í vafra.
Krækjurnar Til baka benda á bókamerki efst á síðunni, slóðin á að vera #efst_a_sidu og ekkert umfram það, trúlega þarf að eyða framan af slóðinni, breyta
http://starfsfolk.khi.is/torfi/hrein_snid/sidusneid_hreint#efst_a_sidu
einfaldlega í #efst_a_sidu og ekkert umfram það. Ef merkið efst á síðunni dettur út af einhverjum ástæðum má setja inn nýtt með Insert og Bookmark og gefa því heitið efst_a_sidu.
Reynið að tefla fram mismunandi sjónarhornum, til dæmis með því að stilla upp stuttum greinum og viðtalsbútum fremur en að gera öllu skil í löngum viðtölum eða greinum. Stillið upp mismunandi sjónarhornum, hvernig horfa málin við nemendum, hvernig við þessum kennara, hvernig við öðrum kennara, hvernig við skólastjóranum, hvernig við foreldrum ... hvað segir þessi, hvað segir hinn. Einnig má brjóta niður efnislega, gera örstutta grein um bókasafnið, aðra um tónmenntina og þar fram eftir götum fremur en steypa öllu í langt viðtal eða grein.
Athugið að þið sjálf getið skapað fjölbreytni í umfjöllun og fengið upp ólík sjónarmið með því að skrifa hvert fyrir sig eða taka örstutt viðtöl hvert við annað. Hvað fannst þér athyglisverðast í þessum skóla, hvernig heldur þú að nám í skólanum muni verða að nokkrum árum liðnum, hvernig fannst þér að heimsækja skólann og vinna að þessu verkefni?
Löngu hnapparnir sem settir eru inn í sniðið til að benda á viðtöl við viðmælendur eða pistla frá einstaklingum í hópnum geyma slóðir að bókamerkjum sem ekki er búið að setja inn á síðusniðið. Í stað slíkrar slóðar að bókamerki getið þið sett slóð að annarri síðu, til dæmis slóðina vidtal_1.htm til að benda á síðuna sem nefnd var sem dæmi um viðtalssíðu hér á undan.
Vefinn má birta með skipuninni Publish Web undir File. Hann má til dæmis setja á slóð eins og http://nemendur.khi.is/notendanafn/skolaheimsokn (þar sem stendur notendanafn setjið þið að sjálfsögðu notendanafnið ykkar).
Myndir
Hvað myndefni snertir er sjálfsagt að hafa í huga að oft má betrumbæta myndir eða gera þær áhugaverðar með myndvinnslu.
Fyrirsagnir
Hafið í huga að fyrirsagnir og inngangssetningar geta gert vef mjög aðgengilegan, áhugaverðan og læsilegan ef rétt er að staðið. Vandið fyrirsagnir og notið millifyrirsagnir þar sem við á.
Aðstoð
Umsjónarmaður þessa verkefnis er reiðubúinn að leiðbeina í tíma um vefsíðugerð í FrontPage og myndvinnslu miðvikudaginn 12. nóvember kl. 15 og fimmtudaginn 13. nóvember kl. 13. Sjálfsagt er líka að vera til ráðgjafar um efnislega meðferð þurfi nemendur á því að halda.
Skólar og tengiliðir
Árbæjarskóli -
http://www.arbaejarskoli.is
Björn H. Jónasson deildarstjóri upplýsingatækni
Melaskóli -
http://www.melaskoli.is
Ragnheiður Benediktsson deildarstjóri upplýsinga- og tæknimenntar
Víkurskóli -
http://www.vikurskoli.is
Ágústa Bárðardóttir aðstoðarskólastjóri
Vesturbæjarskóli -
http://vesturbaejarskoli.ismennt.is
Edda Kjartansdóttir deildarstjóri tölvumála
Breiðholtsskóli -
http://www.breidholtsskoli.is
Kolbrún Hjaltadóttir deildarstjóri í upplýsinga- og tæknimennt
Salaskóli -
http://www.salaskoli.is
Hafsteinn Karlsson skólastjóri
Vefir frá haustinu 2001 og 2002
Hofsstaðaskóli
http://nemendur.khi.is/elenaei/skolavefur/
Álftanes
http://nemendur.khi.is/almaoma/alftanes/
Mýrarhúsaskóli
http://nemendur.khi.is/annator/skolaheimsokn.htm
Garðaskóli
http://nemendur.khi.is/bjararn/skolaheimsokn.htm
Sólvallaskóli
http://nemendur.khi.is/siguodd/skoli/
Selásskóli
http://nemendur.khi.is/ingvisv/selas/
Vogaskóli
http://nemendur.khi.is/eystlar/vogaskoli.htm
Klébergsskóli
http://nemendur.khi.is/herbfri/skolaverk/
Barnaskóli Eyrarbakka og Stokkseyrar
http://nemendur.khi.is/sigrmag/skoli/
Borgarholtsskóli
http://nemendur.khi.is/unnurga/skoli/ Hér vantar efnið ... athuga!
Korpuskóli
http://... Athuga!
Nemendahópar
Myndavélar og upptökutæki eru frátekin í gagnasmiðju fyrir þetta verkefni. Miðvikudagshópar vinsamlega athugið að skila tækjum í tæka tíð fyrir fimmtudagshópa, eigi síðar en kl. 11 á fimmtudagsmorgun.
Miðvikudagshópar
Melaskóli - Kl. 13
Ragnheiður Benediktsson umsjónarmaður tölvumála
tekur á móti hópnum
Hulda Þráinsdóttir
Margrét Þórisdóttir
Benedikt
Einar
Fríða Ólafs
Víkurskóli - Kl. 13
Ágústa Bárðardóttir aðstoðarskólastjóri
tekur á móti hópnum
Íris Másdóttir
Birgir
Guðrún Björk
Elfa Hermanns
Anna Rós Hallgrímsdóttir
Árbæjarskóli - Kl. 13
Björn Jónasson umsjónarmaður tölvumála
tekur á móti hópnum
Kolbrún Erla
Björgvin Sigurðsson
María Helen Eiðsdóttir
Katrín Halldórsdóttir
Kim Magnús J. Nielsen
Fimmtudagshópar
Vesturbæjarskóli - Kl. 13
Edda Kjartansdóttir umsjónarmaður tölvumála
tekur á móti hópnum
Elín Ósk Vilhjálmsdóttir
Gyða Einarsdóttir
Þórdís
Freydís
Breiðholtsskóli
Kolbrún Hjaltadóttir umsjónarmaður tölvumála
tekur á móti hópnum
Aðalbjörg Karlsdóttir
Rakel
Stefán Hrannar
Berglind
Sunna Björg
Salaskóli - Kl. 13
Hafsteinn Karlsson skólastjóri
tekur á móti hópnum
Guðríður Guðnadóttir
Jóhanna Íris
Theodóra Friðbjörndsdóttir
Hildur Bára Hjartardóttir